Abstract

Hér er fjallað um stjórnunarkenningar Guðmundar Finnbogason, heimspekings og sálfræðings, eins og þær koma fram í ritunum Vit og strit frá árinu 1915 og Vinnan frá 1917. Markmiðið er að setja íslenska stjórnunarkenningu í samhengi við sögu stjórnunarfræða og skilja betur samband tímakenninga og stjórnunar. Hér er stuðst við útgefna texta frá því tímabili sem Guðmundur setur fram hugmyndir sínar og þær skoðaðar út frá samtímahugmyndum og kenningum um þróun stjórnunarhugsunar. Sérstakur gaumur er gefinn að framsetningu á upplifun af tíma, náttúrutíma og takti, en sjá má af efnistökum Guðmundar að hann er opinn fyrir ólíkum áhrifum eigin reynslu, heimspeki og bókmennta í aðferðafræði sinni og hugsun. Helstu niðurstöður lestursins eru að fyrstu íslensku stjórnunarkenningarnar í upphafi tuttugustu aldar eru settar fram með hliðsjón af nýjum rannsóknum og fanga jafnframt þær andstæðu hugmyndir sem hafa haft áhrif á stjórnunarfræði á síðustu öld. Eins er hægt að greina mun á milli bókanna tveggja, eins konar þróun kenninga Guðmundar um vinnuvísindi, þar sem inntakið tekur á sig aðar myndir en boðberar vísindalegrar stjórnunar sáu fyrir sér. Greinin er framlag til sögu íslenskra vinnuvísinda, stjórnunarfræða og skilnings á tíma sem viðfangi stjórnunar og stjórnunarhugsunnar.

Full Text
Paper version not known

Talk to us

Join us for a 30 min session where you can share your feedback and ask us any queries you have

Schedule a call

Disclaimer: All third-party content on this website/platform is and will remain the property of their respective owners and is provided on "as is" basis without any warranties, express or implied. Use of third-party content does not indicate any affiliation, sponsorship with or endorsement by them. Any references to third-party content is to identify the corresponding services and shall be considered fair use under The CopyrightLaw.