Abstract

Starfsumhverfi skólastjóra hefur breyst mjög mikið á undanförnum árum, orðið flóknara og starfið viðameira. Með breyttu starfsumhverfi og auknu álagi er stuðningur í starfi þýðingarmikill. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf skólastjóra í grunnskólum til stuðnings við þá í starfi og þörf þeirra á stuðningi. Gögnum í rannsókninni var safnað með spurningalista sem sendur var til allra skólastjóra, 174 alls, og var svarhlutfall 67%.Meginniðurstaða rannsóknarinnar var að skólastjórar voru óánægðir með þann stuðning sem var í boði við upphaf ferils þeirra, eingöngu 32% eru ánægðir með þann stuðning sem þeir fá nú í starfi og 47% þeirra nefndu að þörf fyrir stuðning væri fullnægt að mestu leyti. Flestir nefndu að þeir hefðu fengið mestan stuðning frá fjölskyldu eða vini við upphaf ferils síns og eru niðurstöður svipaðar við núverandi aðstæður. Skólastjórar voru sammála um að mikilvægt væri að njóta stuðnings í starfi en 95% sögðu það mjög eða frekar mikilvægt. Flestir töldu að fræðsluyfirvöld ættu að veita þeim mestan stuðning en einnig kom fram að skólastjórar teldu sig þurfa mestan stuðning við úrlausn erfiðra starfsmannamála og við stefnumótun. Svarhlutfall í rannsókninni var vel viðunandi og dreifing svara yfir landið nokkuð jöfn. Það má því álykta að þá mynd, sem dregin er upp hér, megi að öllum líkindum yfirfæra á skólastjóra í grunnskólum almennt. Af niðurstöðunum má álykta að margir skólastjórar kalli eftir víðtækari og markvissari stuðningi og þá aðallega frá fræðsluyfirvöldum.

Full Text
Published version (Free)

Talk to us

Join us for a 30 min session where you can share your feedback and ask us any queries you have

Schedule a call