Abstract

Krafa um jafna stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi hefur verið áberandi undanfarin misseri, því þrátt fyrir að margt hafi áunnist er enn talsverður kynjamunur til staðar, t.d. hvað varðar laun og hlutfall kynja í stjórnunar- og stjórnendastöðum. Mikið hefur borið á kröfunni um að konur fái laun til jafns við karla og tilraunir gerðar til að fá konur til starfa í dæmigerðum karlastéttum og karla í dæmigerðum kvennastéttum. Staða kynjanna í atvinnulífinu er flókið fyrirbæri sem hefur verið rannsakað bæði á Íslandi og erlendis. Það sem einkennir slíkar rannsóknir er að þær snúast í flestum tilvikum um afmarkaðan þátt viðfangsefnisins, t.d. launamun kynjanna, kvennastéttir, tilvist glerþaks eða mun á stjórnarháttum kynjanna. Tilgangurinn með þessari grein er að draga upp heildarmynd af því flókna viðfangsefni sem staða kynjanna í íslensku atvinnulífi er, með því að greina meginatriði málsins og áhrif þeirra hvert á annað og sýna með einu áhrifariti. Niðurstöðurnar eru meðal annars afrakstur átta rýnifunda um viðfangsefnið í heild eða einstaka mikilvæga þætti þess. Meginframlag greinarinnar er sú heildarmynd sem fæst og sýnd er með áhrifariti. Þrír þættir koma fram sem sérstaklega mikilvægir þættir heildarmyndarinnar, en það eru ólík fjölskylduábyrgð, staðalmyndir kynjanna og frami kvenna í fyrirtækjum. Áhrifaritið gagnast sem grunnur að frekari rannsóknum, ásamt því að hafa hagnýtt gildi fyrir þá sem vinna að því að bæta stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi.

Full Text
Paper version not known

Talk to us

Join us for a 30 min session where you can share your feedback and ask us any queries you have

Schedule a call

Disclaimer: All third-party content on this website/platform is and will remain the property of their respective owners and is provided on "as is" basis without any warranties, express or implied. Use of third-party content does not indicate any affiliation, sponsorship with or endorsement by them. Any references to third-party content is to identify the corresponding services and shall be considered fair use under The CopyrightLaw.